Samkvæmt hinu nýja mati Orkustofnunar eru líkur á að hægt sé að vinna um 4.300 MW af rafafli úr þekktum háhitasvæðum á Íslandi í 50 ár. Það samsvarar um það bil 35 TWh á ári.

Þetta kemur fram á vef Orkustofnunar sem lagt hefur mat á vinnslugetu þekktra háhitasvæða til raforkuframleiðslu. Til samanburðar nam raforkuvinnsla frá jarðvarmavirkjunum árið 2008 um 4 TWh af raforku.

Fram kemur að stofnunin birtir jafnframt tölur þar sem annarsvegar er gert ráð fyrir lágmarksframleiðslugetu einstakra svæða og hámarksgetu hinsvegar. En tekið er fram að líklegast sé að sum svæði reynist aflmeiri en önnur aflminni. Meðalgildið er því talið komast næst heildarmati á vinnslugetu allra háhitasvæða.

Mat á stærð háhitasvæða byggir á yfirgripsmiklum viðnámsmælingum og athugunum á yfirborðsummerkjum. Stærð háhitakerfanna er mörkuð af útlínum háviðnámskjarna á 800 metra dýpi þar sem hitastig hefur líklega náð yfir 230°C á einhverjum tíma. Mat á vinnslugetu er svo byggt á yfirfærslu flatarvinnslugetu með rúmmálsaðferð frá fjórum völdum háhitasvæðum yfir á öll svæðin.

Sjá nánar á vef Orkustofnunar.