Talsmaður Íslensks hátækniiðnaðar, Hilmar Foss, telur líklegt að ákvörðun um olíuhreinsunarstöð við Arnarfjörð verði tekin í ár. Þar með yrði Ísland komið í hóp olíuframleiðsluríkja, að sögn Hilmars. Þetta kemur fram í frétt á vef Bæjarins besta á Ísafirði.

Hilmar vill ekki gefa upp hvaða fyrirtæki standi að baki olíuhreinsunarstöðinni og segir það viðskiptaleyndarmál. Ljóst sé þó að olían komi úr hafinu norður af Rússlandi og að losunarkvótar Kyoto eigi ekki eftir að setja strik í reikninginn, enda falli bókunin úr gildi árið 2012, áður en stöðin tekur til starfa.