Gengi hlutabréfa finnska bankans eQ Bank hækkaði um 4,2% í kjölfar tilkynningar um kaup Glitnis á 68% hlut í finnska fjármálafyrirtækinu FIM.

Sérfræðingar telja það líklegt að Glitnir hafi einnig áhuga á að kaupa eQ Bank og almennt er búist við aukinni samþjöppun á bankamarkaði á Norðurlöndum.

Vert er að taka fram að Glitnir hefur ekki lýst yfir áhuga á að kaupa eQ Bank og einungis er um vangaveltur sérfræðinga í Finnlandi að ræða.