Líklega mun næsta verksmiðja Volkswagen verða staðsett í Alabama fylki í Bandaríkjunum. En samkeppni var á milli fylkja um að fá verksmiðjuna til sín.

Reuters fréttaveitan greinir frá þessu.

Talsmaður Volkswagen segir að enn eigi eftir að taka ákvörðun um staðsetninguna. Hann sagði einnig að ríkin Alabama, Tennessee og Michigan kæmu helst til greina.

Ákvörðun um staðsetninguna verður tilkynnt 21. þessa mánaðar að sögn talsmannsins.

Daimlers Mercedes Car Group, hefur verið með verksmiðju í Alabama árum saman og stálframleiðandinn ThyssenKrupp, hyggst einnig hefja framleiðslu í Alabama.