Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Framsóknarflokksins, en kosið verður síðar í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún birti á Facebook rétt í þessu.

Lilja tók við embætti utanríkisráðherra af Gunnari Braga Sveinssyni eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra í kjölfar Panama-hneykslisins.

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu Lilju í heild sinni:

Framsóknarflokkurinn stendur á tímamótum við upphaf annarrar aldar í sögu flokksins. Flokks sem mótað hefur samfélagið í hundrað ár og á enn brýnt erindi við samtímann.

Alger viðsnúningur hefur orðið á Íslandi á síðustu árum, ekki síst vegna skýrrar sýnar og markvissrar stefnu Framsóknarflokksins. Á kjörtímabilinu hefur náðst góður árangur á flestum sviðum og þjóðarskútan er komin á réttan kjöl. Hagvöxtur er kröftugur, atvinna er næg, staða ríkissjóðs er sterk og skuldir heimilanna eru að lækka. Ég er stolt af því að hafa tekið þátt í endurreisn Íslands á undanförnum árum, meðal annars í störfum mínum hjá Seðlabanka Íslands, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í vinnuhópum um Leiðréttingu og losun fjármagnshafta, sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu og nú síðast sem utanríkisráðherra.

Framundan eru mjög áhugaverðir tímar, þar sem hægt verður að hrinda í framkvæmd mikilvægum samfélagsverkefnum á grunni þess mikla árangurs sem hefur náðst. Framsóknarflokkurinn mun halda áfram á þeirri vegferð að búa til sanngjarnt samfélag, þar sem allir hafa tækifæri til að njóta sín. Sjálf vil ég taka þátt í þeirri vegferð og þess vegna býð ég mig fram til embættis varaformanns Framsóknarflokksins. Ég heiti því að leggja mig alla fram og vinna gott starf fyrir landsmenn alla fái ég til þess umboð.