Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. Félagið á og rekur meðal annars DV og dv.is. Lilja verður annar tveggja ritstjóra sem ráðinn verður.

Ferill Lilju í fjölmiðlum spannar undanfarin fimmtán ár. Hann hófst á Fréttablaðinu en síðan þá hefur hún meðal annars verið ritstjóri Séð og Heyrt, umsjónarmaður innblaðs Fréttablaðsins og Lífsins á Vísi og vefstjóri Mannlífs.

Þá hefur hún einnig unnið sem dagskrármaður í Íslandi í dag og kynningarstjóri Sagafilm. Að auki hefur hún leikið í sjónvarpi, skrifað handrit, talsett auglýsing og samið einleik en Lilja er með BA-gráðu í leiklist fyrir sjónvarp og kvikmyndir.

„Það er mikill fengur fyrir félagið að fá Lilju Katrínu í ritstjórastólinn,“ er haft eftir Karli Garðarssyni, framkvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar, í tilkynningu. Bæði sé hún reynslumikil í fjölmiðlum og hafi skýra sýn á hvert skuli stefna með miðla félagsins.„Við bjóðum hana velkomna til starfa, en framundan eru spennandi tímar hjá félaginu,“ segir Karl.

Lilja tekur við starfinu af Kristjóni Kormáki Guðjónssyni sem færði sig úr ritstjórastól DV yfir til Hringbraut í upphafi apríl.