Lilja Valdimarsdóttir hefur verið ráðin til Coripharma sem aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptaþróunar.

Lilja hefur áralanga reynslu af markaðsstarfi í lyfjageiranum. Hún hóf störf hjá markaðsdeild Delta/Actavis árið 2001 og starfaði hjá Medis frá 2006 til 2020, síðast sem viðskiptaþróunarstjóri (e. business development manager). Hún er lyfjafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Lilja mun einbeita sér að verkefnum sem tengjast sölu á lyfjum þróuðum af Coripharma og leiða vinnu við uppbyggingu og skipulagningu á ferlum innan viðskiptaþróunar.