Fjölmennur fundur kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi, haldinn á Hótel Bjarkalundi, samþykkti rétt í gærkvöldi framboðslista, að tillögu kjörnefndar, vegna komandi alþingiskosninga.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, Alþingismaður leiðir listann áfram, Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður og forstöðumaður, Skagafirði er áfram í öðru sæti, en nýr í 3. Sæti er Rúnar Gíslason, háskólanemi í Borgarnesi.

Hér má sjá listann í heild:

  1. Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, Suðureyri.
  2. Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi og forstöðumaður, Skagafirði.
  3. Rúnar Gíslason, háskólanemi, Borgarnesi.
  4. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur og yfirnáttúrubarn, Hólmavík.
  5. Dagný Rósa Úlfarsdóttir, bóndi á Ytra-hóli og kennari, Skagabyggð.
  6. Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri, Stykkishólmi.
  7. Reynir Eyvindsson, verkfræðingur, Akranesi.
  8. Þröstur Þór Ólafsson, framhaldsskólakennari, Akranesi.
  9. Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, Ísafirði.
  10. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kennari, Reykholtsdal, Borgarbyggð.
  11. Bjarki Hjörleifsson, athafnamaður, Stykkishólmi.
  12. Eyrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðinemi, Borgarnesi.
  13. Matthías Sævar Lýðsson, bóndi á Húsavík, Strandabyggð.
  14. Lárus Ástmar Hannesson, kennari og sveitarstjórnarfulltrúi, Stykkishólmi.
  15. Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri, Bolungarvík.
  16. Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi á Brúarlandi, Mýrum í Borgarbyggð.