Lilja Pálsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Mörkuðum Landsbankans. Lilja mun hefja störf eftir áramót en hún mun sinna eignastýringu fyrir lögaðila í einkabankaþjónustu hjá Landsbankanum.

Lilja lauk M.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 en hún hefur einnig lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

Lilja starfaði frá árinu 2011 hjá Arion banka við gjaldeyris- og afleiðumiðlun í markaðsviðskiptum. Á árunum 2010 til 2011 vann hún á eldsneytissviði Skeljungs við innkaupastýringu og áhættuvarnir vegna eldsneytiskaupa. og á árunum 2006 til 2010 vann hún í afleiðudeild Íslandsbanka.