Söluverð hlutafjár Límtrés Vírnets er 120 milljónir króna. Að auki nema vaxtaberandi skuldir um 600 milljónum króna. Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans, hefur selt iðnfyrirtækið til Uxahryggja ehf. Starfseiningar Límtrés Vírnets voru áður hluti af samstæðu BM Vallár sem tekið var til gjaldþrotaskipta í maí 2010.

Segir í tilkynningu að hluthafar í  Uxahryggjum séu átta, þ.á m. Fjárfestingarfélagið Stekkur ehf. sem er í eigu Kristins Aðalsteinssonar sem á 45% hlut, Bingó ehf. sem er í eigu Hjörleifs Jakobssonar sem á 35% hlut, en aðrir hluthafar, þ.e. Pétur Geirsson, Guðmundur Magnússon og Eignarhaldsfélag Suðurlands eiga þar minni hluti ásamt Bláskógarbyggð, Borgarbyggð, og Hrunamannahreppi.

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu að það sé ánægjulegt hversu vel hefur tekist að vinna úr erfiðri stöðu. ,,Það er mjög ánægjulegt hversu vel hefur tekist að vinna úr erfiðri stöðu sem alltaf kemur upp þegar fyrirtæki verða gjaldþrota. Það er trú okkar í Landsbankanum að sala þessi og aðkoma heimamanna að rekstrinum muni hafa jákvæð áhrif á félagið og byggðalögin þar sem það starfar.“

Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir einnig:

„Uxahryggir hafa í hyggju að auka hlutafé Límtrés Vírnets og stefnt er að því að laða að félaginu fleiri  heimamenn. Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á starfsemi félagsins og verða aðalstöðvar þess áfram í Borgarnesi.

Starfseiningar Límtrés Vírnets, Vírnet í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleiningar í Reykholti, voru hluti af samstæðu BM Vallár hf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í maí 2010. Rekstrarfélag sem Landsbankinn stofnaði tók við rekstri fyrirtækisins 25. maí og þá lýsti bankinn því yfir að hann hygðist selja reksturinn innan 6 mánaða. Með stofnun rekstrarfélagsins tókst Landsbankanum að tryggja 65 störf og var flestöllum starfsmönnum boðið starf í hinu nýja félagi.

Límtré Vírnet er öflugt fyrirtæki í framleiðslu og þjónustu fyrir innlendan byggingariðnað. Það byggir á rekstri gamalgróinna fyrirtækja, Vírneti sem var stofnað 1956 og þjónað hefur íslenskum byggingamarkaði óslitið frá þeim tíma og Límtré sem stofnað var 1982.

Aðalstöðvar Límtrés Vírnets  eru í Borgarnesi og þar eru framleiddar klæðningar, áfellur og saumur, auk þess sem þar er blikksmiðja, járnsmiðja og rafmagnsverkstæði. Á Flúðum er límtrésverksmiðja félagsins, í Reykholti er yleiningaframleiðsla en söluskrifstofa og lager eru í Kópavogi auk hluta yfirstjórnar og skrifstofuhalds.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með söluferlinu sem hófst 29. september 2010. Söluferlið var opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem sýnt gátu fram á fjárfestingargetu umfram 250 milljónir króna. 15 aðilar sýndu fyrirtækinu áhuga, 11 skiluðu inn óskuldbindandi tilboði og 8 fengu aðgang að gagnaherbergi til að afla sér frekari upplýsinga.“