Lín Design opnar á morgun nýja og mun stærri verslun á Glerártorgi á Akureyri. Í tilkynningu vegna leigusamningsins segir að mikil viðskipti í versluninni á Glerártorgi hafi einfaldlega leitt til þess að stækka þurfti verslunina,

„Við fengum strax hlýjar og góðar viðtökur hér á Akureyri og við finnum fyrir miklum áhuga á okkar íslensku hönnun. Viðskiptavinir Glerártorgs virðast koma af afar stóru svæði, bæði vestan og austan við Akureyri, frá Borgarnesi í vestri og til austfjarða. Þetta hefur einfaldlega leitt til þess að við urðum að stækka við okkur,“  segir Bragi Smith, framkvæmdastjóri Lín Design.

Bragi segir að Lín Design framleiði vandaðar vörur úr bestu fáanlegri bómull og rík áhersla sé lögð á að upplýsa viðskiptavini um úr hverju vörurnar séu framleiddar.