Sindrandi ehf, félag í eigu Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, félags í eigu stjórnarmanns í Klöppum grænum lausnum hf., sem skráð er á First North markaðinn, hefur keypt 600 þúsund hluti í félaginu samkvæmt tilkynningu í kauphöllinni.

Fékk félagið hlutina á 14,50 krónur hvern, sem gerir að kaupverð allra hlutanna nam samanlagt 8,7 milljónum króna. Þess utan á hún í beinni eigu 5.000 hluti, en markaðsvirði þeirra miðað við þetta verð eru 72.500 krónur.