© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

„Baðhúsið hefur verið minn draumur en ég hef bara getað uppfyllt hluta hans í Brautarholtinu. Í húsnæðinu í Smáralind næ ég loksins að uppfylla hann að fullu,“ segir Linda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins, í tilkynningu þar sem fram því er greint að Baðhúsið og fasteignafélagið Reginn hafi gert með sér samning sem felur í sér að Baðhúsið flytur í vesturenda Smáralindar í Kópavogi í lok árs. Áætlað er að starfsemin hefjist þar 1. desember næstkomandi. Samningurinn, sem var undirritaður í vikunni, er metinn á um 450 milljónir króna. Fasteignafélagið Reginn er eigandi Smáralindar.

Baðhúsið var stofnað fyrir að verða 20 árum og hefur verið starfrækt í Brautarholtinu um árabil. Húsnæðið er nú orðið of lítið, að því er segir í tilkynningu.

Baðhúsið verður í stórglæsilegu og rúmgóðu húsnæði í vesturenda Smáralindar og er áætlað að starfsemin þar hefjist 1. desember.

Komin nær miðju höfuðborgarsvæðisins

Linda segir í tilkynningunni viðskiptavini Baðhússins hafa sýnt fyrirtækinu tryggð í gegnum tíðina.

„Ég veit að konurnar okkar verða himinlifandi með aðstöðuna í Smáralind, sem verður sérsniðin fyrir þær,“ segir hún og heldur áfram: „Okkur hefur liðið vel í Brautarholtinu en okkur langaði til að sjá Baðhúsið blómstra að fullu og taka þetta næsta skref. Nú er sá draumur að rætast og við verðum nær miðju höfuðborgarsvæðisins, með næg bílastæði og góða aðkomu. Við hlökkum til að sjá Baðhúsið springa út í Smáralind.“