Þann 1. júlí nk. verða breytingar á skipulagi hjá Samkaup hf. Linda Sigurbjörnsdóttir mun taka við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Innkaupa- og Vörudreifingarsviðs.

Linda er með B.Sc í viðskiptafræði og starfaði hún sem vöruþróunar- og vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni á árunum 2005-2010.

Hún hefur starfað hjá Samkaup frá árinu 2010 sem innkaupastjóri.