© Aðsend mynd (AÐSEND)

Athafnakonan og fegurðardísin Linda Pétursdóttir er með snyrtivörulínu í undirbúningi fyrir konur frá þrítugu og upp úr. Fyrsta kremið úr línunni kemur á markað með vorinu. Snyrtivörurnar koma til með að heita Beauty by Linda.

Linda segir í samtali við Fréttatímann í dag að hún þrói kremin með samstarfsfólki sínu á Ítalíu þar sem varan er framleidd.

„Ég ákvað að hafa nafnið á ensku því ég stefni á alþjóðamarkað með vörulínuna mína. Fyrsta kremið sem kemur er svokallað CC nude krem, en það er dagkrem sem leiðréttir og jafnar húðlit þannig að óþarfi er að nota meik á eftir sem er auðvitað það sem við viljum flestar. Í kreminu eru litaðar örkúlur sem blandast mjúklega öllum húðgerðum, með þrefaldri tækni sem nær fram fullkominni, sléttri og skínandi húð. Ég var með rýnihóp kvenna á ýmsum aldri sem prófuðu kremið og voru þær allar sammála um gæði þess og bíða eftir að fá það á markað til að geta notað daglega,“ segir hún í viðtali í Fréttatímanum.