„Það hefur aldrei talist stórmannlegt að tala gegn betri vitund en að milljarða fasteignarisi skuli leggjast svo lágt að ráðast á lítið fyrirtæki eins og Baðhúsið af þessu afli og reyna að gera mig og starfsfólk Baðhússins að ósannindafólki er með ólíkindum," segir í tilkynningu frá Lindu Pétursdóttur, eiganda Baðstofunnar.

Vísar hún í yfirlýsingunni til orða Helga Gunnarssonar, forstjóra Regins, um að Baðhúsið hafi ekki staðið við gerða samninga og samningnum hafi því verið rift vegna verulegra vanefnda af hálfu Baðhússins. Þetta sagði Helgi í samtali við mbl.is

Yfirlýsingar Helga furðulegar

Þetta eru furðulegar yfirlýsingar sem koma frá forstjóra Regins um að staðið hafi verið við alla samninga gagnvart Baðhúsinu og vanefndir séu eingöngu okkar megin. Þessum yfirlýsingum hafna ég algjörlega,“ segir Linda Pétursdóttir. „Starfsfólk og viðskiptavinir Baðhússins geta vitnað um að sannleikurinn er allt annar," bætir hún við.

Hún segir staðreyndir málsins vera þær að Reginn hafi dregið lappirnar með að afhenda húsnæðið í fullbúnu ástandi undir rekstur Baðhússins og því hafi hún ekki haft annan kost en að loka. Í tilkynningu Lindu má finna myndir og hljóðupptökur sem hún segir renna stoðum undir mál sitt. „Myndir og hljóðbrot segja allt aðra og sannari sögu um röð vanefnda, lélegs frágangs og truflana af hálfu Regins sem leiddu til þess að viðskiptavinir Baðhússins gátu aldrei notið kyrrðar og friðar fyrir háværum hamarshöggum, hávaða í borvélum, iðnaðarmönnum að störfum, ryki um allt, lekum gluggum og svo mætti áfram telja. Við slíkar aðstæður er ekki hægt að reka afslöppunar- og dekurmiðstöð," segir í tilkynningu.

Vanefndir Baðhúss komnar til vegna Regins

Í tilkynningunni segir að vanefndir á leigu til Regins megi rekja til þess að aðstaða hafi öll verið óviðunandi vegna lélegs frágangs sem hæfði ekki starfseminni. „Ég ítreka það sem ég hef áður sagt; Við fengum húsnæðið afhent alltof seint og í ófullnægjandi ástandi á háannatíma sem varð þess valdandi að Baðhúsið missti bróðurpart tekna sinna er  gerði reksturinn þungbæran er leið á árið. Vegna þessa tekjumissis réð reksturinn m.a. ekki við greiðslu leigu og það eru vanefndirnar sem Reginn talar um og gekk hart eftir í að tryggja sér með fullu, þ.e. með riftun á samningi og hótun um útburð," segir Linda Pétursdóttir.

Meðfylgjandi hljóðbrot segir Linda hafa verið tekin í slökunartímum í Baðhúsinu eftir opnun í Smáralind:

Hljóðbrot 1 , hljóðbrot 2 , hljóðbrot 3

Myndirnar segir Linda að hafi verið teknar eftir að Baðhúsið hafi opnað í Smáralind:

Baðhúsið segir Regin ekki hafa afhent húsnæðið í viðunandi ástandi.
Baðhúsið segir Regin ekki hafa afhent húsnæðið í viðunandi ástandi.
© Aðsend mynd (AÐSEND)