Linda Kristmundsdóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítalans, var tekjuhæsti hjúkrunarfræðingurinn á landinu í fyrra og námu tekjur hennar að jafnaði tæplega 2 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Næst tekjuhæsti hjúkrunarfræðingurinn var Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Landspítalanum, en mánaðartekjur hennar námu sömuleiðis að jafnaði tæplega 2 milljónum á mánuði.

Fimm tekjuhæstu hjúkrunarfræðingar ársins 2018:

  1. Linda Kristmundsdóttir, framkv. stj. kvenna- og barnasviðs LSH 1,986 milljónir
  2. Sigríður Gunnarsdóttir, frkv.stj. hjúkrunar LSH 1,981 milljónir
  3. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, frkvstj. flæðisv. Landsp. 1,889 milljónir
  4. Lilja Stefánsdóttir, frkvstj. Skurðlækningasv. Landsp. 1,876 milljónir
  5. Magnús Ólafsson, deildarstjóri á geðsviði 1,856 milljónir

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .