Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja netverslun á slóðinni lindex.is í haust. Boðið verður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga á hagkvæmu verði.  Vörurnar munu verða afhendar beint úr nýju vöruhúsi félagsins sem mun tryggja að afhendingartími verður með stysta móti.  Verslunin opnar haustið 2017 að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Lindex.

„Við erum að innleiða netverslun á öllum okkar stöðum og leggjum mikla vinnu í það og einurð. Við erum full tilhlökkunar að geta boðið okkar hagkvæmu tískuvörur í netverslun sem er á heimatungumálinu og gefa upp verð í heimagjaldmiðlinum.“ segir Ingvar Larsson, forstjóri Lindex.

„Við erum mjög ánægð með þetta skref og teljum að það felist í því mikil tækifæri með ört vaxandi netverslun Íslendinga.  Sett í samhengi við okkar mikla fjölda verslana um land allt mun þetta án nokkurs vafa verða frábær viðbót við flóru verslana okkar.  Við munum afhenda vörurnar beint frá vöruhúsinu okkar sem gerir vöruúrvalið og afhendingartíma með besta móti.”, segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.