Í dag hefjast framkvæmdir við stækkun verslunarinnar við hlið núverandi rýmis í Kringlunni. Mun heildarvörulínu undirfatadeildar Lindex nú í fyrsta sinn verða gert að fullu skil auk þess sem Lindex Kids, sem hefur verið gríðarlega vel sótt, stækka að auki.

Gera má ráð fyrir að starfsmannafjöldi Lindex á Íslandi fjölgi í 90 við þessa breytingu en stækkuð og endurbætt verslun opnar laugardaginn 4. október, segir í fréttatilkynningu frá Lindex.

Til viðbótar við undirfatnað verður einnig boðið upp á aukahluti Lindex sem mikilvægir eru til að fullkomna útlitið.

Stækkunin sem nú er hafin mun einnig ná til Lindex Kids, meðal annars með stækkun í barna- og unglingadeild þar sem aukið verður aðgengi að þessum vinsælu deildum. Hin vinsæla MOM lína fyrir verðandi mæður mun einnig fá veglegri sess í nýrri og endurbættri verslun Lindex Kids í Kringlunni. Mátunarklefum og afgreiðslukössum verður fjölgað til þess að gera þjónustu, aðgengi og upplifun viðskiptavina enn betri.