Verslunin Lindex í Smáralind mun bráðlega stækka og verður næstum tvöfalt stærri en upphaflega. Samtals er því golfflötur verslunarinnar 800 m2 og þetta á að auka vörubreidd í kvennadeild eins og segir í tilkynningu fyrirtækisins. Lindex rekur yfir 450 verslanir í yfir 14 löndum ásamt netverslun. Hjá fyrirtækinu starfa 5000 manns.

Í nóvember opnaði Lindex verslun sína í Smáralind sem var eins stærsta opnun fyrirtækisins.