Lísa Zachrison Valdimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. Starfið var auglýst laust til umsóknar síðla febrúar og sóttu 32 um starfið. Tveir drógu umsókn sína til baka.

Fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ að Lísa er með BA próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá HÍ, MSc próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá Simmons College í Boston og MSc próf í mannauðsstjórnun frá HÍ. Auk þess er hún með kennsluréttindi í félagsgreinum.

Lísa hefur tæplega 20 ára starfsreynslu á bókasöfnum m.a. sem deildarstjóri á Bókasafni Kópavogs og síðast sem forstöðumaður bókasafns – og upplýsingaþjónustu Listaháskóla Íslands í tæp sjö ár, en safnið er stærsta listbókasafn landsins staðsett á þremur stöðum í Reykjavík.

Lísa tekur við starfinu af Hrafni A. Harðarsyni sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns Bókasafns Kópavogs um langt árabil. Hann lætur nú af störfum fyrir aldurs sakir.

Bókasafn Kópavogs tilheyrir Listhúsi Kópavogs en þar innanborðs eru einnig Salurinn, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Héraðsskjalasafn Kópavogs og Tónlistarsafn Íslands. Öll starfa þessi menningarhús samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar og er stefnt að enn nánara samstarfi þeirra í millum á næstu mánuðum og misserum.