Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, líst vel á Barack Obama,verðandi forseta Bandaríkjanna, og segir hann vera “ungan, fallegan og sólbrúnan.”

Berlusconi lét þessi orð falla á fundi með blaðamönnum í Moskvu í gær þar sem að forsætisráðherrann er í opinberri heimsókn.

Hann sagði jafnframt að Obama þyrfti að standast undir miklum væntingum þar sem að heimurinn liti á hann nánast sem ígildi “Messíasar.”