Paul Bisaro, starfandi stjórnarformaður Actavis, hefur verið nefndur einn af þeim forstjórum í heiminum sem náð hefur hvað mestum árangri á liðnu ári samkvæmt árlegri samantekt sem birtist í Harvard Business Review.

Paul Bisaro starfaði sem forstjóri Watson Pharmaceuticals, forvera Actavis frá haustinu 2007 og var forstjóri þegar fyrirtækið keypti Actavis árið 2012. Hann tók svo við sem starfandi stjórnarformaður þegar Brent Saunders var ráðinn forstjóri Actavis 1. júlí sl. við sameiningu fyrirtækisins við bandaríska sérlyfjafyrirtækinu Forest Laboratories.

Hjá starfsstöð Actavis á Íslandi eru nú starfræktar öflugar alþjóðlegar einingar á sviði lyfjaþróunar, alþjóðlegrar lyfjaskráningar, framleiðslu og gæðamála en hér á landi eru einnig höfuðstöðvar Medis, dótturfélags Actavis sem sérhæfir sig í sölu lyfja og lyfjahugvits til annarra lyfjafyrirtækja.

Harvard Business Review setur saman þennan lista árlega yfir 100 forstjóra, en hann byggist á hversu vel stjórnendum hefur tekist að auka virði hlutahafa og markaðsvirði fyrirtækis síns. Paul Bisaro er hér á meðal forstjóra stórfyrirtækja eins og Amazon, Cisco systems, Netflix og Telenor en hann er númer 31 listanum.