Úr framleidd af JS Watch co. Reykjavík myndskreytt af Erró og Eggerti Péturssyni seldust fyrir meira en eina milljón hvort á uppboði á netinu og var sami kaupandi að báðum úrunum. Úr með myndskreytingu Errós seldist á 1.160 þúsund og úr myndskreytt af Eggerti Péturssyni seldist á 1.000 þúsund. Samtals söfnuðust því yfir tvær milljónir en allur ágóðinn rennur óskertur til Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.