Atvinnuleysi meðal útskrifaðra laganema frá Háskólanum í Reykjavík er lítið og varla merkjanlegt fyrr en hjá þeim sem útskrifuðust árið 2012, samkvæmt niðurstöðum símakönnunar sem lagadeild skólans lét gera í lok árs 2013. Í könnuninni skoðað lagadeildin atvinnustöðu útskrifaðra lögfræðinga sem lokið hafa fullnaðarprófi í lögfræði eftir fimm ára nám.

Í tilkynningu frá HR um niðurstöður könnunarinnar segir að 83% þeirra nemenda sem útskrifuðust í fyrsta árgangi hafa aflað sér réttinda sem héraðsdómslögmenn og einn aflað sér réttinda til að starfa sem hæstaréttarlögmaður. Nær allir sem útskrifuðust úr náminu vinna við lögfræðistörf. Hlutföllin lækka eftir því sem nær dregur. Til samanburðar hafa 36% þeirra sem úrskriifuðust árið 2012 náð sér í réttindi sem héraðsdómslögmenn. Þá eru fimm þeirra sem útskrifuðust úr náminu atvinnulausir.

Fleiri konur svara könnuninni og er það í samræmi við kynjahlutfall nemenda í lögfræði. Útskrifaðir nemendur frá HR starfa á flestum sviðum lögfræði. Flestir starfa hjá lögfræðiskrifstofum annað hvort sem lögmenn  eða fulltrúar eða 39%, hjá opinberri stjórnsýslu 34% og hjá fjármálafyrirtækjum starfa 17%.

Um könnunina:

Hringt var í alla nemendur sem hafa útskrifast úr meistaranámi lagadeildar HR frá fyrstu útskrift árið 2007 til ársins 2013.  Í úrtakinu voru  369 lögfræðingar en alls svöruðu 193 og er því svarhlutfall 52%. Hópurinn var spurður 10 spurninga en m.a. var spurt um stöðu á vinnumarkaði, atvinnugrein og starfsheiti, hvort viðkomandi hefði aflað sér hdl. réttinda, hvort laganámið hefði nýst þeim og hvort þeir teldu launakjör sín góð eða slæm.