Hafrannsóknastofnun ráðleggur að leyfðar verði veiðar á 149 tonnum af rækju í Arnarfirði en rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2021/2022.

Ráðgjöfin byggir á stofnmælingu rækju í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi sem fór fram dagana 30. september til 9. október 2021. Stofnvísitala rækju í Arnarfirði var lág en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Rækja var smærri árin 2018-2021 samanborið við fyrri ár en magn karldýra var meira en undanfarin ár.

Vísitala ýsu var sú hæsta frá árinu 2011 en magn þorsks var í meðallagi.

Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi var sú lægsta sem mælst hefur frá árinu 1988. Vísitala ýsu hefur haldist há frá árinu 2004 og árin 2020-2021 voru vísitölur ýsu þær hæstu sem mælst hafa í Ísafjarðardjúpi. Útbreiðslusvæði ýsu hefur stækkað og nær hún nú inn allt Djúpið.

Niðurstöður úr stofnmælingu fyrir Arnarfjörð má sjá hé r. Fyrir Ísafjarðardjúp hér.