Úrvalsvísitalan stóð í stað í dag en hefur hækkað um 25,71% frá áramótum. Lokagildi hennar var 1.648 stig í dag. Velta með hlutabréf nam 720.406.316 krónum og fjöldi viðskipta var 67. Viðskipti með skuldabréf námu 1.857.801.156 krónum.

Flest félög stóðu í stað í dag en mest lækkun var með bréf Vís en þau lækkuðu um 0,70%. Viðskipti með bréfin námu 90.638.795 krónum

TM hækkaði lítillega eða um 0,49% og námu viðskipti með bréfin 114.055.580 krónum.