Lítil breyting er veltu á fasteignamarkaði milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni 984 milljónir króna en var í síðustu viku 943 milljónir króna. Veltan eykst því um 4% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 21% milli vikna.

Rétt er að hafa í huga að meðalvelta á viku frá áramótum er rúmir 2,2 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem vikuvelta á fasteignamarkaði er undir einum milljarði en síðast gerðist það vikuna 13. – 19. júní. Þar áður hafði veltan ekki farið undir milljarð frá því milli jóla og nýárs árið 2004.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 31 í vikunni sem leið en 35 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali hefur 69 samningum verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 31,8 milljónir króna og hækkar um tæpar fimm milljónir milli vikna. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,2 milljónir.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 84% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.