Velta á fasteignamarkaði jókst um 9% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 28% á milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 78% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Í vikunni sem leið nam veltan um 1,7 milljarði króna en í fyrri viku nam veltan um 1,6 milljörðum króna.

Meðalvelta á hvern samning var 28,3 milljónir sem er svipað og í vikunni á undan þegar meðalvelta á hvern samning var 28,7 milljónir sem var talsvert yfir meðaltali. Meðaltal á árinu er 33 milljónir á hvern samning

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 62 en voru 56 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 78,7 á viku frá áramótun.