Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 8% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 22% á milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Í vikunni sem leið nam veltan um 2 milljörðum en í fyrri viku nam veltan um 2,2 milljörðum króna. Meðalvelta á hvern samning er um 27,2 milljónir.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 59% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 75 en voru 76 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 83,2 á viku frá áramótun.