íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303 stig í apríl og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Vísitalan stendur á svipuðum staða og hún gerði í janúar eftir að hafa lækkað lítillega í febrúar. Í desember sl. náði vísitalan fjögurra ára lágmarki (302,1 stig) en þá hafði hún ekki verið lægri síðan í byrjun árs 2006.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á síðasta ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Á fyrstu mánuðum þessa árs hefur hins vegar verið lítil breyting á íbúðaverði eins og sjá má á myndinni.

Íbúðaverð hefur nú lækkað töluvert, eða um 15,2% á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 0,1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3,4% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 3,6%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.