Gengisvísitalan var 158,1 stig við lokun markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og styrktist krónan því styrkst um 0,5% frá opnun markaða í morgun en veiktist um 0,1 frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 157,5 stig en var á föstudag 158 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran í 123,1 krónu, Bandaríkjadalur í 79,4 krónum og Sterlingspundið í 154,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,7 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum