Gengisvísitalan er nú 151,1 stig samkvæmt vef Landsbankans og hefur krónan því styrkst um 0,4% í morgun frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var nú kl. 11 í morgun 151,3 stig en í gær 150,5 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 118,5 krónum, Bandaríkjadalur í 74,7 krónum og Sterlingspund í 147,1 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum