Gengisvísitalan er nú 206,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur veikst um 0,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.
Krónan veiktist um 2,4% í gær en hefur lítið hreyfst frá opnun í morgun.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 206,7 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 204,7 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.
Krónan hefur nú veikst um 12,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.
Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 112,6 krónum, Evran í 155,9 krónum og Sterlingspundið í 198,9 krónum. Sterlingspundið fór um tíma í tæpar 202 krónur í dag.
Þá stendur svissneskur franki í 99,5 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,9 krónum.