Gengisvísitalan er nú 147,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun markaða í morgun en veikist aftur á móti um 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Lítil hreyfing var á krónunni síðustu tvo daga en hún veiktist þú um 1% undir lok dags í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,9 stig var í gær 146,1 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,4 krónum, Bandaríkjadalur í 73,6 krónum og Sterlingspundið í 145,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,1 krónu og japanskt jen í 0,70 krónum