Lítil hreyfing hefur orðið á gengi íslensku krónunnar frá opnun markaða í morgun. Samkvæmt Markaðsvakt Mentis hefur hún ný styrkst um 0,01% en fyrir einungis nokkrum mínútum nam veiking hennar 0,19%. Sveiflurnar í morgun hafa verið örar en litlar.

Eins og greint hefur verið frá hefur Seðlabankinn nú þegar nýtt nýfengna heimild um takmörkun fjármagnsflutninga .

Krónan er í raun fljótandi núna að undanskildum þeim takmörkunum.