Gengisvísitalan er nú 158,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,5 stig en var í gær 159,1 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 0,3% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,5 krónum, Evran í 121,7 krónum og Sterlingspundið í 152,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,5 krónum, japanskt jen í 0,76 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.