Gengisvísitalan er nú 158,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun í morgun en hefur styrkst um 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,8 stig líkt og í gær.

Krónan hefur veikst um 1,2% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82 krónum, Evran í 122 krónum og Sterlingspundið í 155,8 krónum. Hafa skal í huga að Bandaríkjadalur hefur styrkst nokkuð gagnvar evrunni síðustu daga.

Þá stendur svissneskur franki í 75,1 krónu, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.