Gengisvísitalan er nú 145,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun markaða í morgun en stendur í stað frá opinberu gengi Seðlabankans fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 145,9 stig líkt og á föstudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 113,9 krónum, Bandaríkjadalur í 72,2 krónum og Sterlingspundið í 142,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,4 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.