Gengisvísitalan er nú 147,9 samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,3% frá opnun markaða í morgun en aftur á móti styrkst um 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,3 stig en var í gær 148,4 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,1 krónu, Bandaríkjadalur í 73 krónum og Sterlingspundið í 144,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71 krónu og japanskt jen í 0,71 krónu.