Gengisvísitalan er nú 148,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun markaða í morgun en 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,4 stig en var í gær 148,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 116,1 krónu, Bandaríkjadalur í 73,6 krónum og Sterlingspundið í 144,75 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,5 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.