Gengisvísitalan er nú 153,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,3% frá opnun markaða í morgun en stendur í stað frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,3 stig líkt og í gær.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 118,75 krónum, Bandaríkjadalur í 77,4 krónum og Sterlingspundið í 151,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,3 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum