Gengisvísitalan er nú 149,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá lokun markaða í gær en hún hefur þó veikst um 0,5% frá opinberu gengi gærdagsins.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 149,2 stig en var í gær 148,3 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 116,1 krónu, Bandaríkjadalur í 74,7 krónum og Sterlingspund í 147 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.