Hlutabréf bæði hækkuðu og lækkuðu í Asíu í dag en MSCI Kyrrahafsvísitalan stóð nánast í stað við lok markaða eftir að hafa hækkað örlítið í gær.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,1% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 1,1%.

Í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan hins vegar um 2,3%, í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,4% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 0,6%.