Lítil hreyfing er á hlutabréfamörkuðum í Evrópu það sem af er degi og stendur FTSEurofirst 300 vísitalan í stað þegar þetta er skrifað, kl. 10:10.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkað um 0,2%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan hækkað um 0,4% en í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,2%.

Þá hefur SMI vísitalan í Sviss hækkað um 0,2% og sömuleiðis CAC 40 vísitalan í París.

Í Osló stendur OBX vísitalan í stað en í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi eru markaðir enn lokaðir vegna tæknilegra bilana.