Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 0,27% í viðskiptum upp á tæpar 3,8 milljónir króna í dag. Mest voru þó viðskipti með bréf Marel, upp á tæpar 73 milljónir króna. Gengi hlutabréfa fyrirtækisins hækkaði hins vegar ekki.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,13% og endaði hún í 967,68 stigum.