Gengi hlutabréfa Haga-samstæðunnar hækkaði um 0,27% í 222,8 milljóna króan viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Bréf Haga voru þau einu sem hækkuðu í verði í dag.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1%. Gengi bréfanna fór yfir sjö krónur á hlut í gær í talsverðri veltu og hafði það ekki verið hærra síðan félagið fór í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu fyrir tveimur árum. Gengi bréfanna endaði í 6,95 krónum á hlut í lok dags.

Úrvalsvísistalan hækkaði um 0,24% og endaði í rúmum 1.015 stigum í veltu upp á rúmar 236,3 milljónir króna.