Lítil hreyfing hefur orðið á olíuverði í viðskiptum í nótt og í morgun en verð á hráolíu af Brentsvæðinu hefur hækkað lítillega, um 0,19%, eftir lítilsháttar lækkun í gær, 0,3%, og hráolía frá Mexíkóflóa og svæðinu þar um kring (WTI) hefur lækkað um 0,14%. Í gær lækkaði WTI-olían um 1 sent, sem er innan við 0,1% af verði hennar.

Tunnan af Brent-olíu kostar nú 123,89 dali og tunnan af WTI-olíu kostar 112,12 dali.