Lítil hreyfing hefur verið á peningamagni í umferð það sem af er þessu ári en peningamagn í umferð minnkaði um rétt rúmar 200 milljónir króna á milli mánaða í apríl sl. Nú eru tæplega 36,5 milljarðar króna af seðlum og mynt í umferð samkvæmt nýjum hagtölum Seðlabankans. Hér er aðeins átt við lausafé í umferð.

Samkvæmt tölum Seðlabankans um bankakerfið hafði aldrei verið jafn mikið fjármagn og í lok síðasta árs, þegar um 39,4 milljarðar króna af seðlum og mynt voru í umferð en tölur bankans ná aftur til ársins 1994. Til gamans má geta að í janúar 1994 voru um 3,4 milljarðar króna í umferð.

Peningamagn í umferð jókst um 4,1 milljarða króna á milli mánaða í desember sl. og hefur ekki aukist jafn mikið á milli mánaða síðan í desember 2010. Þá jókst peningamagn í umferð um 7 milljarða á síðasta ári en hefur nú aukist um 4,1 milljarð á milli ára. Þá hefur peningamagn í umferð minnkað um rúma 2,9 milljarða frá áramótum.

© vb.is (vb.is)

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan jókst magn peninga í umferð gífurlega í október 2008, eða um tæp 90%. Þá fór magn peninga í umferð frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september 2008 í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október sama ár. Hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október s.l.

Þá minnkaði peningamagn í umferð fram á vorið 2009 en hefur síðan þá aukist jafnt og þétt þó lítil hreyfing hafir verið á fyrstu mánuðum þessa árs.