Gerður Þórarinsdóttir settist niður með vinkonu sinni Lilju Dögg Gylfadóttur í ágúst á síðasta ári og ræddu þær sameiginlegan draum sinn um að opna barnafataverslun. Síðan þá hafa hlutirnir gerst hratt en í síðustu viku varð draumur þeirra að veruleika þegar barnafataverslunin Skottur og skæruliðar var opnuð á Grettisgötu 3. „Við erum búnar að opna kósý verslun með vönduð og falleg föt,“ segir Gerður.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.